Erlent

Beittu táragasi á Jólaeyju

Lögreglumenn á Jólaeyju, þar sem Ástralar hafa komið upp fangabúðum fyrir ólöglega innflytjendur, beitti táragasi til að berja niður uppreisn sem þar hefur geisað síðustu daga.

Ráðherra innflytjendamála segir að fimm hælisleitendur hafi slasast í átökunum en hann vildi ekki staðfesta að lögregla hafi beitt gúmmíkúlum gegn fólkinu eins og haldið hefur verið fram. Uppþotin hófust á sunnudag þegar íranskir flóttamenn mótmæltu aðbúnaði í búðunum eftir að samlandi þeirra sem hafði strokið fannst látinn í nágrenninu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×