Arnór: Haukarnir komu mér ekki á óvart Ingvi Þór Sæmundsson í Schenker-höllinni skrifar 22. nóvember 2015 20:00 Arnór í kröppum dansi í kvöld. vísir/stefán
Arnór Atlason, leikmaður Saint Raphael, var ánægður að fara með sigur, 28-29, frá Ásvöllum eftir hörkuleik við Íslandsmeistara Hauka í 3. umferð EHF-bikarsins. Frakkarnir leiddu með fimm mörkum í hálfleik, 10-15, en Haukar spiluðu frábærlega í seinni hálfleikinn og voru hársbreidd frá því að ná jafntefli gegn liðinu sem situr í 2. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar. "Það var einhver værukærð hjá okkur," sagði Arnór um seinni hálfleikinn sem Haukar unnu 18-14. "Þeir skora 18 mörk og það á ekki að vera hægt, gegn hvaða liði sem er. Við erum svekktir með það en ég er ánægður með að mínir menn fengu að sjá alvöru handbolta á Íslandi. "Þetta var hörkuleikur og við þurfum bara að fara heim og vinna seinni leikinn," sagði landsliðsmaðurinn ennfremur en hann skoraði sex mörk í leiknum. Arnór sagði að mótspyrna Hauka hafi ekki komið sér á óvart. "Nei, alls ekki. Ég reiknaði með hörkuleik. En eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, þá vonaði ég að þetta færi ekki í svona spennuleik. En við erum ánægðir með sigurinn," sagði Arnór sem hrósaði Haukaliðinu fyrir frammistöðu þess í kvöld. "Þeir spiluðu mjög vel og voru vel skipulagðir. Það var kraftur í þeim og þetta er flott lið." Seinni leikurinn fer fram í Saint Raphael 29. nóvember. Arnór býst einnig við hörkuleik þá. "Ég á von á því sama. Við þurfum að gefa allt í þetta. Það er mikilvægt fyrir okkur að komast í riðlakeppnina," sagði Arnór að lokum.
Handbolti Mest lesið Selfoss fór með sigur af hólmi á Laugardalsvelli Íslenski boltinn „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Handbolti „Varnarleikurinn var skelfilegur” Handbolti Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Handbolti Dortmund kom til baka á meðan AC Milan og Chelsea unnu örugga sigra Fótbolti FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ Handbolti Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Körfubolti Virtist ætla að vaða í samherja sinn Fótbolti Efast um dugnað og hugarfar Rashford Enski boltinn Ísak Bergmann kom Düsseldorf til bjargar Fótbolti Fleiri fréttir „Varnarleikurinn var skelfilegur” FH á toppinn eftir sigur í Garðabæ „Komnir með miklu fleiri stig en ég átti von á“ Uppgjörið: Fram - Haukar 37-34 | Framarar gengu á lagið í síðari hálfleik Tíu marka sigur Íslands Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum Sjá meira