Lífið

Hulunni svipt af Wonder Woman

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Gal Gadot frumsýnir gervið í Batman v. Superman: Dawn of Justice
Gal Gadot frumsýnir gervið í Batman v. Superman: Dawn of Justice vísir/getty
Leikkonan Gal Gadot ærði aðdáendur sína af spennu í gær þegar hún birti fyrstu myndina af sér í gervi Wonder Woman sem væntanleg er í samnefndri kvikmynd.

Warner Bros kvikmyndaverið hefur gefið það út að myndin muni koma út árið 2017. 

„Næstum 75 ár í vinnslu, #WonderWoman er á leiðinni,“ sagði Gadot á Twitter-síðu sinni ásamt myndinni þar sem hún sést í einhvers konar hempu.

Myndinni er leikstýrt af Patty Jenkins og ásamt fyrrnefndri Gadot fara Chris Pine, Robin Wright, Danny Huston, David Thewlis, Ewen Bremner, Said Taghmaoui, Elena Anaya and Lucy Davis með aðalhlutverkin.

Wonder Woman verður tekin upp í Bretlandi, Frakkland og Ítalíu.

Gal Gadot í gervi ofurhetjunnar mun fyrst bregða fyrir í kvikmyndinni Batman v. Superman: Dawn of Justice sem verður frumsýnd í mars á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.