Körfubolti

KR og Njarðvík drógust saman

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Haukur Helgi Pálsson mætir aftur í DHL-höllina.
Haukur Helgi Pálsson mætir aftur í DHL-höllina. vísir/anton brink
Dregið var til átta liða úrslita Powerade-bikars karla- og kvenna í körfubolta í hádeginu.

Í kvennaflokki fá bikarmeistarar Grindavíkur heimsókn frá Helenu Sverrisdóttur og Haukaliðinu á meðan Valur tekur á móti Íslandsmeisturum Snæfells.

Skallagrímur, sem leikur í 1. deild kvenna, heimsækir Keflavík og þá eigast við Stjarnan og Hamar.

Í karlaflokki mætast KR og Njarðvík ef KR tekst að leggja B-lið Hauka að velli í frestuðum leik á laugardaginn. Fastlega má reikna með að Íslandsmeistarar síðustu tveggja ára ráði við það verkefni.

Fyrstudeildarlið Skallagríms fær Grindavík í heimsókn, Þór tekur á móti Haukum í Þorlákshöfn og B-lið Njarðvíkur mætir Keflavík í Suðurnesjaslag.

8 liða úrslit kvenna:

Valur - Snæfell

Grindavík - Haukar

Keflavík - Skallagrímur

Stjarnan - Hamar

8 liða úrslit karla:

Þór Þ. - Haukar

Njarðvík b - Keflavík

KR/Haukar b - Njarðvík

Skallagrímur Grindavík




Fleiri fréttir

Sjá meira


×