Egill og Steindi leiða saman hesta sína Gunnar Leó Pálsson skrifar 19. desember 2015 09:00 Steindi Jr. og Egill Ólafsson flytja lokalag áramótaskaupsins í ár. Hér eru þeir alsælir við tökur á Skaupinu.
Árið 2015 var klárlega ár rappsins og það var ekki hægt að horfa fram hjá því, þannig að þetta er rapp en samt mjög poppað og því eiga allir að geta verið með,“ segir Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr., um lokalagið í Áramótaskaupinu í ár. Lagið ber titilinn Allir með og nýtur Steindi liðsinnis Stuðmannsins og sjóarans síkáta Egils Ólafssonar, en þótt þeir tveir séu að vissu leyti ólíkir listamenn gekk samstarfið mjög vel. „Ég hef unnið með Steinda áður, hann er skemmtilegur og er alveg sér á parti. Ég er ánægður með að þetta hafi verið borið undir mig,“ segir Egill um Steinda. „Það var mjög mikill heiður að vinna með Agli og er hann að mínu mati einn flottasti listamaður þjóðarinnar,“ bætir Steindi við. Lagið er samið af StopWaitGo, en tríóið samdi jafnframt tvö vinsælustu lögin í undankeppni Eurovision á árinu. Teymið hefur verið Steinda innan handar með mörg hans vinsælustu laga og má þar nefna lögin Djamm í kvöld og Dansa það af mér. „Þegar við vorum uppi í stúdíói að búa til lagið og textinn var að fæðast, fórum við að kasta fram nöfnum um hvaða rödd gæti hentað viðlaginu og þegar nafn Egils kom upp þá varð ekki aftur snúið. Þetta er lokalag skaupsins og það þarf að vera stórt og það er enginn stærri en Egill Ólafs,“ segir Steindi. Egill fer einnig með stórt hlutverk í myndbandinu. „Ég held að fólki muni hafa mjög gaman af því að sjá Egil á skjánum á gamlárskvöld, enda algjör stórleikari.“ Egill segist halda að lagið geti vakið mikla lukku. „Ég hef aldrei haft nef fyrir hit-lögum en mér finnst þetta vera algjör eyrnaormur. Það er mjög söngvænt og dansvænt heyrist mér og textinn er á vissan hátt hvetjandi, það er að segja ef maður slítur hann úr samhengi við raunverulegt innihald,“ segir Egill. Spurður út í hvort Stuðmannablær sé yfir laginu segir Egill svo ekki vera. „Nei, þetta er annars eðlis. Steindi rappar þarna og það hefur nú ekki verið mikið um slíkt hjá Stuðmönnum. Að vísu rappaði Flosi Ólafsson í laginu Fiddi bátsmaður og Birna sprettur, það má því alveg segja að Steindi sé ákveðin framlenging af Flosa. Hann er ef til vill Flosi dagsins í dag,“ bætir Egill við léttur í lund. Steindi er gamall rappari og því ekki alls ókunnur að láta rímurnar flæða. Steindi, sem söng lokalag Áramótaskaupsins árið 2013 ásamt Baggalútsmönnum, semur texta lagsins. „Þegar ég sem texta þá er það fyrsta sem ég geri að ákveða viðfangsefni í laginu og svo sem ég brandarana og söguna og enda svo á textanum,“ segir Steindi, sem vildi ekki gefa upp hvað lagið fjallar um að svo stöddu en vonar að fólki taki vel í það og allir verði með. Eins og fyrr segir er lagið frumsamið og er Steindi alveg á því að lokalög í Áramótaskaupinu eigi að vera frumsamin. „Persónulega finnst mér lokalagið eiga að vera frumsamið, mér finnst það eiga að vera skylda. Mér finnst ekki nógu mikill metnaður í því að þýða bara einhvern texta fyrir lokalagið en á móti getur verið hættulegt að koma með frumsamið lag sem enginn hefur heyrt og kannast því ekki við og þarf því að vera mjög grípandi og ná áhorfendunum strax. Við höfum legið yfir laginu i mjög langan tíma og vonum að það heppnist,“ segir Steindi um lagið. Tökur á Skaupinu gengu mjög vel en Steindi segir að mikill hraði hafi verið í tökunum. „Við lögðum upp með að gera skemmtiþátt fyrir alla fjölskylduna og reyndum því að halda pólitík í lágmarki. Það hefur rosalega margt gengið á síðustu daga og það þurfti að hoppa út í nokkur pikköppskot til að fullkomna skaupið,“ segir Steindi. „Ég bið vinsamlegast pólitíkusa um að hætta að skíta á sig og listamenn að bíða með alla listræna gjörninga fram í janúar því búið er að læsa Skaupinu,“ bætir Steindi við og hlær. Kristófer Dignus leikstýrir Skaupinu í ár en hann leikstýrði Skaupinu einnig árið 2013. Handritshöfundarnir eru þau Guðjón Davíð Karlsson leikari, Katla Margrét Þorsteinsdóttir leikkona, Atli Fannar Bjarkason, ritstjóri Nútímans, og Steindi.
Tengdar fréttir Aukatökur í Skaupinu vegna Almars og kassans Ekkert gefið upp hvaða leikari fer í kassann, ef þá nokkur. 7. desember 2015 14:20 Mest lesið „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Lífið „Ég var heppinn. En ekki hann“ Lífið „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Lífið Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Lífið Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Lífið Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til Lífið Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Lífið Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Lífið Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Lífið Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru Lífið Fleiri fréttir Karlmennskuhlaðvarpið heyrir sögunni til „Ég var heppinn. En ekki hann“ „Það er önnur hver gella með í vörunum“ Gómsætar haustkökur að hætti Elenoru „Það braut ísinn að við hefðum deitað sama gaurinn“ Fréttatía vikunnar: Körfubolti, laxaastmi og stýrivextir Áslaug Arna fór í meðferð til að vinna bug á köngulóafælni Ólafur Ragnar skellti sér á sæþotu eftir langan dag Simmi Vill og Sunneva Einars létu sig ekki vanta á Jókerinn Vill að Menendez bræðrum verði veitt frelsi Skrúfaði titrarann í sundur til að forða nágrönnum frá ónæði Eminem verður afi Foreldrar minnka við sig svo börnin geti keypt fyrstu eign „Mikilvægt að umkringja sig fólki sem veitir manni innblástur“ Það er töff að vera sauðfjárbóndi Ingunn Lára gengin út með Celebi Elt á röndum með drónum Rauða dreglinum rúllað út fyrir Svörtu sanda „Þetta er alveg áhugavert en ekki jafn áhugavert og Instagramið mitt“ Tína sveppi í íslenskri náttúru og nýta til fulls „Eini glæpur okkar var sá að verða ástfangin“ Krem í tísku sem séu börnum stórhættuleg Barnabarn Kurt Cobain og Tony Hawk í heiminn Draumur Lilju rættist á tískuvikunni í París Eitt huggulegasta par landsins selur íbúð með fallegum stigagangi Sigmundur birtist fyrirvaralaust Breskur Eurovision-sigurvegari látinn Gerður Huld seldi húsið á 239 milljónir „Stór hluti af samfélaginu okkar“ Haldið í hefðina í Hafnarfirði eftir óhapp Ólafs Sjá meira
Aukatökur í Skaupinu vegna Almars og kassans Ekkert gefið upp hvaða leikari fer í kassann, ef þá nokkur. 7. desember 2015 14:20