Bíó og sjónvarp

Hitað upp fyrir framhald X-Files

Samúel Karl Ólason skrifar
Fox Mulder og Dana Scully.
Fox Mulder og Dana Scully. Mynd/Fox
Nú er innan við mánuður í að þau Fox Mulder og Dana Scully birtist aftur á skjáum sjónvarpa um heim allan. Rúmum þrettán árum eftir að framleiðslu upprunalegu þáttanna var hætt. Þann 24. janúar byrjar ný sex þátta sería með þeim David Duchovny og Gillian Anderson í aðalhlutverkum.

Ljóst er að margir iða í skinninu, enda þóttu þættirnir gífurlega vinsælir á árum áður.

Framleiðendur þáttanna hafa nú gefið út 22 mínútna þátt um undirbúning og framleiðslu seríunnar, sem sjá má hér að neðan.

Upprunalegu þættirnir voru í sýningu frá 1993 til 2002 og voru þættirnir fleiri en 200. Þar að auki hafa verið gerðar tvær kvikmyndir. The X-Files sem gefin var út 1998 og The X-FilesI Want to Believe var gefin út árið 2008.

Þættirnir gerast sjö til átta árum seinna en síðasta myndin og er samband þeirra Mulder og Scully orðið stirt. Fyrsti og síðasti þátturinn mun snúa að þeirri sögu sem gömlu þættirnir snerust um, en inn á milli verða þættir sem standa á eigin fótum.

Fyrsti þáttur verður frumsýndur á Stöð 2 31. janúar næstkomandi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×