Sport

Lyfjavandinn í Rússlandi er risavaxinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Vladimir Pútin, forseti Rússlands, ásamt rússneskum íþróttamönnum.
Vladimir Pútin, forseti Rússlands, ásamt rússneskum íþróttamönnum. vísir/getty
Fyrrum framkvæmdastjóri rússneska lyfjaeftirlitsins viðurkennir að lyfjavandinn í Rússlandi sé mjög alvarlegur.

Það er búið að setja alla rússneska frjálsíþróttamenn í bann vegna lyfjamálanna í landinu og alls óvíst hvort þeir fái að vera með á ÓL í ágúst á næsta ári.

Á fimmtudag féllu fjórir rússneskir lyftingarmenn á lyfjaprófi á heimsmeistaramótinu.

Framkvæmdastjórinn fyrrverandi segir að ástandið sé svo slæmt að 40 prósent af lyfjabrotum í landinu séu hjá unglingum.

„Það er ekkert land með eins marga íþróttamenn á ólöglegum lyfjum og ástandið er grafalvarlegt. Það verður að taka á þessu almennilega," sagði Ramil Khabriev en hann sagði starfi sínu lausu í upphafi desembermánaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×