Star Wars: Atriðin sem voru í stiklunum en ekki í myndinni Samúel Karl Ólason skrifar 23. desember 2015 20:15 Geislasverðið sem vakti mikla athygli.
Hér að neðan verður fjallað um Star Wars: The Force Awakens. Sérstaklega nokkur atriði úr myndinni. Ef þú ert ekki búinn að sjá myndina og vilt ekki vita meira um söguþráð hennar, ekki lesa meira. Síðasti séns.Margir af þeim sem séð hafa kvikmyndina Star Wars: The Force Awakens tóku eftir því að nokkur atriði sem sýnd voru í stiklunum áður en myndin var gefin út. Sáust ekki í myndinni sjálfri. Leikstjórinn J.J. Abrams hefur nú sagt að hann hafi ekki ætlað sér að draga aðdáendur á asnaeyrunum, heldur hafi myndin einfaldlega ekki verið fullkláruð þegar stiklurnar voru birtar. Í viðtali við AP fréttaveitunna fór Abrams yfir nokkur af þessum atriðum. Fyrsta atriðið sem tekið er fyrir vakti mikla athygli þegar fyrsta stiklan var birt.Sjá einnig: Aðdáendur gráta yfir nýjustu stiklu The Force Awakens Í því atriði má sjá skúrk myndarinnar, Kylo ren beita nýstárlegu geislaverði sínu. Aðdáendur voru mishrifnir af sverðinu þegar það sást fyrst, en umrætt atriði var ekki í myndinni. Annað atriði sem var í stiklunum var þegar Maz Kanata rétti annarri konu geislaverð Luke Skywalker. Í myndinni lét hún þó Finn fá sverðið. Abrams segir að upprunalega hafi Maz farið til höfuðstöðva uppreisnarinnar eftir að bar hennar varð að rústum einum og lét hún Leiu fá sverðið. Það atriði hafi þó verið klippt út úr myndinni. Fleiri atriði sem komust ekki í myndina voru til dæmis þegar Rey fór inn í flak af geimskipi á Jakku og svo heyrðist Rödd Mark Hamill í einnistiklunni. Abrams segir að það hafi aldrei staðið til að hann myndi segja eitt orð í þessari mynd. Það hafi einungis verið gert fyrir stiklurnar. Opinber myndbönd frá Force Awakens má sjá hér.
Bíó og sjónvarp Star Wars Mest lesið Þakklátir að búa í landi þar sem þeir geta gifst ástinni sinni Lífið Margot Robbie ólétt Lífið Stjörnulífið: Dauð mús og djamm í Mykonos Lífið Gera grín að bransanum með „virtustu verðlaunum heims“ Menning Jon Landau er látinn Bíó og sjónvarp Gerður í Blush trúlofuð Lífið Erfiðast að horfa upp á veikindi ömmu sinnar Lífið Rauðhærðir í brennidepli á vel sóttum írskum dögum Lífið Laufey í banastuði í Reykjavík Lífið „Í upphafi var tribal teknóið vinsælast en svo týndu menn því” Lífið Fleiri fréttir Jon Landau er látinn Brad Pitt í mynd um Formúlu 1 í framleiðslu Hamilton Donald Sutherland er látinn Heimaleikurinn vann til verðlauna í Ástralíu „Gaman hvað verið er að tala fallega um samstarfsfólkið mitt“ Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Gerard Butler á klakanum í enn eitt skiptið Íslenskur hryllingstryllir á Vestfjörðum vekur athygli í Tribeca Eltihrellirinn höfðar mál gegn Netflix Þýskur risi í samstarf við ACT4 um gerð Stóra Bróður Sjá meira