Lífið

Útgáfufyrirtæki Biebers eyddi lagi Inga Bauer út af Soundcloud: Sjötíu þúsund spilanir á einni viku

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ingi Bauer gerir þetta einstaklega vel.
Ingi Bauer gerir þetta einstaklega vel. vísir
Eðlilega hefur Justin Bieber verið mikið í íslenskum fjölmiðlum að undanförnu eftir að ljós kom að hann mun halda tónleika í Kórnum þann 9. September næstkomandi.

Ungur íslenskur listamaður er greinilega mikill aðdáandi Bieber en hann gengur undir nafninu Ingi Bauer.

Ingi var að senda frá sér tónlistarmyndband við endurhljóðblandaða útgáfu af Justin Bieber laginu What Do You Mean.

Ingi er búsettur í Los Angeles þessa stundina þar sem hann stundar nám við tónlistarskólann Musicians Institute. Myndbandið er allt tekið upp í stórborginni Los Angeles og er það tekið með sjónarhorni Inga.

Myndbandið endurspeglar venjulegan dag í lífi Inga á líflegan og skemmtilegan hátt. Ingi hlóð laginu upprunalega á Soundcloud síðuna sína og fékk það yfir 70.000 hlustanir áður en því var eytt út af Soundcloud af útgáfufyrirtæki Biebers vegna höfundarréttar. Hér að neðan má sjá myndbandið frá Inga.

Waking up in LA

My remix of the song 'What Do You Mean' by Justin Bieber was deleted on Soundcloud when it had 70 thousand plays in just 4 days, but here it is with a little video I did for you guys. Enjoy! :DFree Download link: www.hive.co/l/auih

Posted by Ingi Bauer on 18. desember 2015





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.