Innlent

Rafmagnslaust í Neskaupstað

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Frá Neskaupstað.
Frá Neskaupstað. vísir/gva
Rafmagnslaust er í Neskaupstað þessa stundina eftir að útleysing varð á Neskaupstaðarlínu 1, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, rétt fyrir klukkan hálf níu í morgun. Tilraunir til að setja línuna inn aftur báru ekki árangur og er nú verið að ræsa varaafl á staðnum.

Einnig varð rafmagnslaust á Seyðisfirði klukkan fjögur í nótt, þegar Seyðisfjarðalína 1 leystu út, en rafmagn var komið aftur á þar um átta mínútum seinna, að því er segir í tilkynningu frá Landsneti.

Landsnet er með aukinn viðbúnað á Austur- og Norðurlandi vegna stormsins sem gekk á land í gærkvöld og nótt en aðrar truflanir hafa ekki orðið á raforkuflutningskerfi Landsnets í nótt og í morgun, þrátt fyrir mikið vindálag á Austurlandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×