Tölfræðin segir að City sé bara meðallið án Kompany Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. desember 2015 12:15 Wayne Rooney og Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City. Vísir/Getty
Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, var upp í stúku í gær þegar liðið gerði markalaust jafntefli á móti Leicester City í toppslag í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. City-menn sakna Vincent Kompany mikið og tölfræðin sýnir það og sannar. 56 prósent stiga Manchester City í fyrstu 19 umferðum ensku úrvalsdeildarinnar (20 af 36) hafa komið í þeim átta leikjum sem Vincent Kompany hefur spilað. Liðið hefur aðeins fengið samtals 16 stig í hinum 11 leikjunum. Manuel Pellegrini, knattspyrnustjóri Manchester City sagði eftir leikinn að Vincent Kompany verði frá keppni í þrjár til fjórar vikur vegna meiðslanna. „Þetta er sami kálfi en ekki sami staður," sagði Manuel Pellegrini en Kompany hefur verið að glíma við þessi meiðsli allt tímabilið. Hann meiddist fyrst á kálfa í Meistaradeildarleik á móti Juventus 15. september. Kompany haltraði útaf í leik á móti Sunderland á öðrum degi jóla eftir að hafa komið inná sem varamaður skömmu áður. Vincent Kompany náði bara að spila í níu mínútur í leiknum og það eru einu mínúturnar hans í ensku úrvalsdeildinni frá því í byrjun nóvember. Vincent Kompany hefur aðeins spilað 11 af 19 leikjum Manchester City í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. Það munar eins og áður sagði mikið um Vincent Kompany og tölfræðin sýnir það svart á hvítu. City-liðið hefur fengið 2,5 stig að meðaltali í þeim 8 leikjum sem hann hefur spilað en er bara að fá 1,45 stig að meðaltali í leik án hans. Manchester City hélt reyndar hreinu í fyrsta sinn án Vincent Kompany á móti Leicester í gær en liðið hefur aðeins fengið á sig eitt mark samtals og haldið sjö sinnum hreinu í þeim átta leikjum sem Kompany hefur spilað í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni. Liðið er því að fá á sig 1,72 mörk í leik þegar Vincent Kompany spilar ekki en með hann í miðri vörninni hefur liðið aðeins fengið á sig eitt mark á 728 mínútum.
Enski boltinn Mest lesið Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Svona var fundurinn fyrir tugmilljóna leikinn í Laugardal Íslenski boltinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Enski boltinn Birkir á leið til Vals á nýjan leik Íslenski boltinn Neyddir í eina stystu rútuferð sögunnar Fótbolti Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Enski boltinn Fleiri fréttir Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Sjá meira