Bragðmikill fiskréttur með kartöflu og sellerímús. Það er best að byrja á því að útbúa kartöflumúsina.
Kartöflu – og sellerímús
1 sellerírót, skorin í teninga
8-10 kartöflur
2 - 3 msk smjör
mjólk, magn eftir smekk hver og eins
sykur
salt og pipar
Aðferð: Fyrsta skref er að afhýða sellerírót og sjóða bæði rótina í karöflur í söltu vatni. Gætið þess að sjóða sellerírót og kartöflur í sitt hvorum pottinum. Hvort tveggja soðið þar til mjúkt. Vatninu hellt af og kartöflur eru afhýddar. Sellerírót og kartöflum er stappað saman. Volgri mjólk og smjöri bætt út í, bragðbætið með salti og pipar. Stappið saman þar til þið náið þeirri áferð sem þið kjósið. Leyfið kartöflumúsina á standa í pottinum við vægan hita á meðan þið útbúið fiskinn og ólífusalsa.
Þorskurinn
800 g þorskhnakkar, skorinn í 200 g steikur
Ólífuolíu
Salt og pipar
Aðferð: Þorskhnakkar eru besti hluti þorsksins og jafnast á við fína steik. Byrjið á að skera flökin í jafn stóra bita. Hitið olíu á pönnu og steikið fiskinn á hvorri hlið í þrjár til fjórar mínútur. Kryddið til með salti og pipar. Þegar fiskurinn er alveg að verða klár þá byrjið þið að bæta ólífusalsa saman við.
Tómat – og olífusalsa
Bragðmikið salsa sem fer vel með fiskinum.
5 vorlaukar, smátt saxaðir
Handfylli svartar ólífur, í bitum
Handfylli sólþurrkaðir tómatar, í bitum
2 – 3 msk furuhnetur, ristaðar
Ferskt steinselja, smátt söxuð
Aðferð: Skerið vorlaukinn niður, ólífur í tvennt og sólþurrkuðu tómatana í bita. Bætið öllu ú á pönnuna með og steikið í 1 – 2 mínútur, bætið steinselju og smjöri út á pönnuna í lokin en smjörið gerir réttinn enn bragðbetri.
Ekki missa af Matargleði Evu á fimmtudagskvöldum klukkan 20.10 á Stöð 2.