Lífið

Tveggja ára íslensk internetstjarna slær í gegn

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Daníel Breki tekur lagið.
Daníel Breki tekur lagið. Mynd/Youtube
Hinn tveggja ára gamli Daníel Breki hefur slegið í gegn á Youtube, en þar sést hann meðal annars syngja lagið Lay Me Down af mikilli innlifun ásamt Heiðari Inga Árnasyni sem er kærasti móður Daníels.

Í samtali við Fréttanetið segir Heiðar að hann og Daníel hafi byrjað að syngja saman þegar sá stutti var eins og hálfs árs gamall. Þar segir Heiðar frá því að myndband hafi birst af þeim félögum á stórum Facebook-síðum erlendis.

Hér að neðan má sjá Daníel Breka og Heiðar Inga taka lagið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×