Heilsa

Eyrnaormur!

sigga dögg skrifar
Justin Bieber er algengur eyrnaormur
Justin Bieber er algengur eyrnaormur
Eyrnaormur er hvimleitt fyrirbæri sem felur sem betur fer í sér andlegan orm frekar en raunverulegt skríðandi dýr.

Samkvæmt Vísindavefnum þá virkjast hljóðbörkur í heilanum þegar við hlustum á tónlist: 

Þegar við heyrum bút úr lagi sem við þekkjum getur hljóðbörkurinn fyllt upp í það sem á vantar af laginu. Í rannsókn sem gerð var við Dartmouth College voru lög, sem fólk þekkti vel, spiluð og síðan stöðvuð í 3-5 sekúndur. Þá fyllti hljóðbörkurinn upp í það sem á vantaði. Ef það sama var gert við lög sem menn höfðu ekki heyrt áður, hélt örvun hljóðbarkarins ekki áfram.

Stundum þarf ekki nema fáeinar laglínur til þess að heilabörkurinn haldi áfram með lagið og stundum er nóg að heyra eða lesa titil lagsins eða orð úr textanum til að lagið fari af stað í kollinum á manni.

Svo virðist sem að konur fái oftar lög á heilann frekar en karlar og er þetta sérstaklega algengt meðal tónlistarmanna.

Eyrnaormur er algengari þegar fólk er þreytt eða undir miklu álagi.

Eina leiðin til að losna við lagið er að raula eitthvað annað lag.

Hér eru nokkrir góðir eyrnaormar





Vanilluísinn smýgur inn í heilann



Flest popplög enda sem eyrnaormar á einhverjum tímapunkti



Ef þú hefur sótt leik í meistaradeild í körfuknattleik þá er ekki ólíkegt að þú raulaðir þetta lag næstu daga á eftir 



Flestir foreldrar hafa eflaust raulað þetta á leið í vinnunna, í vinnunni, á leið úr vinnunni, yfir kvöldmatnum, þegar svæfa börnin og svo þegar leggjast sjálfir til rekkju



Nánast öll lög sem eru gerð fyrir börn verða að eyrnaormum








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.