Viðskipti erlent

Netflix komið til Kúbu

ingvar haraldsson skrifar
Mánaðaráskrift Netflix mun kosta um 40 prósent af meðal mánaðarlaunum Kúbverja sem eru um 20 til 25 dollarar.
Mánaðaráskrift Netflix mun kosta um 40 prósent af meðal mánaðarlaunum Kúbverja sem eru um 20 til 25 dollarar. vísir/ap/getty
Netflix hyggst bjóða Kúbverjum aðgang að efnisveitu fyrirtækisins. Þjónusta fyrirtækisins mun þó nýtast litlum hluta landsmanna þar sem aðeins 5 til 26 prósent Kúbverja eru nettengdir eftir því hver segir frá.

Stjórnvöld í Kúbu segja 25 til 26 prósent landamanna vera nettengda. Sanja Kelly verkefnisstjóri netfrelsis hjá Freedom House í  Washington D.C. segir töluna vera nær 5 prósentum í samtali við Marketwatch.

Mánaðaráskrift Netflix mun kosta 7,99 dolllara á mánuði. Það er um 40 prósent af meðal mánaðarlaunum Kúbverja sem eru um 20 til 25 dollarar.

Kelly segir ákvörðun Netflix fyrst og fremst táknræna og muni skipta almenning á Kúbu litlu máli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×