Lífið

Fólkið á Secret Solstice: Með fjölskylduna á tónlistarhátíð

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Fjölskyldan var í góðri stemningu á hátíðinni.
Fjölskyldan var í góðri stemningu á hátíðinni. Mynd/GyðaLóa
Ásdís Guðmundsdóttir og Stígur Már Karlsson voru á tónleikasvæðinu ásamt tveimur börnum sínum.

Þetta var fyrsti dagurinn þeirra á Secret Solstice og var Ásdís ánægð með hátíðina. „Við ákváðum að taka bara börnin með, sem ég þarf greinilega að fara að taka með mér heim," segir Ásdís og hlær.

Veðrið hefur svo sannarlega leikið við gesti hátíðarinnar í dag og sólin skinið skært og var Ásdís ein af þeim fjölmörgu sem sáu the Wailers og var virkilega ánægð með tónleikana.

Sjálf var Ásdís á leið heim með börnin en sagði Stíg spenntan fyrir að sjá Wu-Tang Clan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×