Tónlist

Tveir færustu plötusnúðar landsins berjast um titilinn DJ Íslands

Maggi Legó og DJ Kári ætla að takast á af krafti í kvöld.
Maggi Legó og DJ Kári ætla að takast á af krafti í kvöld.
Plötusnúðarnir DJ Kári og Maggi Legó eru íslenskum tónlistarunnendum góðu kunnir enda hafa þeir verið meðal fremstu plötusnúða landsins í áraraðir.

Í kvöld ætla þessir þekktu plötusnúðar að mætast í einstöku einvígi þar sem þeir takast á um titilinn „DJ Íslands“.

Einvígið fer fram á skemmtistaðnum Paloma og fer þannig fram að hvor keppandi fær ákveðinn tíma til að heilla áhorfendur með lagavali og samsetningu. Verður síðan dæmt eftir stemmningu og fagnaðarlátum viðstaddra.

Plakat viðburðarins.
„Í vinstra horninu er einn færasti og reyndasti snúður landsins, ósigraður í 31 ár, stofnandi T WORLD og GUS GUS, stundum kallaður Herb Legowitz eða jafnvel Buckmaster De La Cruz, en þeir sem þekkja kappan bezt kalla hann Magga Lego.

Í hægra horninu er áskorandinn, Formaðurinn sjálfur, Dj Kári. Hann hefur verið að ógna stöðu Legowitz stöðugt um árabil og því má búast við hörðum átökum og taumlausri spilagleði þetta sunnudagskvöld,“ segir í tilkynningu frá Sunnudagsklúbbnum, sem stendur fyrir klúbbakvöldum með færustu plötusnúðum landsins alla sunnudaga í sumar.

Aðstandendur búast við góðri aðsókn og frábærri stemmningu. 

Þessir tveir skífuknapar hafa barist um hylli dansþyrstra Íslendinga um áratuga skeið og því er þessi einstaki viðburður eitthvað sem þeir vilja ekki láta fram hjá sér fara.

Húsið opnar klukkan 21. Skemmtistaðurinn Paloma er til húsa í Naustinni 1-3.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.