Tónlist

Róbert Marshall söng um Guðmund Steingrímsson í jólaþætti Loga

Róbert Marshall, þingmaður Bjartrar framtíðar, söng um flokksbróður sinn, Guðmund Steingrímsson, í fáránlega stóra jólaþætti Loga. Klippuna úr þættinum má sjá í spilaranum hér að ofan en textann við lagið hér að neðan: 

Gleymi ekki mínum minnsta bróður

þó klárlega sé mikið að

Hann er oft sveittur, bólginn, rjóður,

en það þýðir ekki að fást um það.

Guðmundur heitir Steingrímssonur

sá hefur ýmsa flokka gist

Nú hafna honum menn og konur

Hann fylgið hefur misst

Hví var´ann sendur okkur

Hvað höfum við nú gert, þessi hálfviti ógnar heilli þjóð

Menn konur og börn lifa í angist

Hvers vegna Guðmund Steingrímsson ?

Búum til betri heim

sendum hann Gumma þeim

sem enn minna mega sín

það fylgir lán frá Lín

Flytjum nú söngfuglinn

með nikkuna og falskheitin

langt í burt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.