Skora á Íslandsdeild Amnesty að beita sér gegn frelsi í vændi Birgir Olgeirsson skrifar 5. ágúst 2015 14:55 Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta, er ein þeirra sem ritar undir yfirlýsinguna. 365/Þorbjörn Þórðarson
Sjö kvennasamtök á Íslandi skora á Íslandsdeild Amnesty International að beita sér af alefli fyrir því að tillaga alþjóðahreyfingar Amnesty um að gefa vændi frjálst verði felld. Samtökin sjö sem um ræðir eru Stígamót, Kvennaathvarfið, Kvennaráðgjöf, Samtök kvenna af erlendum uppruna, Kvenfélagasamband Íslands, Kvenréttindafélagið og Femínistafélag Íslands. Alþjóðahreyfing Amnesty mun funda í Dyflinni á Írlandi helgina 7. til 11. ágúst næstkomandi þar sem liggur fyrir tillaga um að Amnesty líti svo á að vændi eigi að gefa grjálst. Verður kaup, sala, milliganga um vændi og rekstur vændishúsa samkvæmt tillögunni látið ótalið. Kvennasamtökin sjö segja þessa tillögu ganga þvert á þá mannréttindabaráttu sem Amnesty er þekkt fyrir. „Að okkar mati er vændi ekki atvinnugrein. Vændi er ofbeldi og frjáls sala á fólki samræmist ekki okkar skilgreiningu á mannréttindum. Þar að auki er nær ógjörningur að skilja á milli vændis og mansals. Kaupendur hafa ekki hugmynd um hvort þær konur sem þeir kaupa, eru að selja sig af fúsum og frjálsum vilja eða þær eru gerðar út af manseljendum. Ef Amnesty vill uppræta mansal, er mikilvægt að samtökin geri sér grein fyrir að það verður ekki gert nema með því að minnka eftirspurn eftir vændi. Samhliða því þarf að bjóða upp á félagsleg úrræði fyrir þau sem stunda vændi og leiðir út,“ segir í yfirlýsingu frá samtökunum en undir hana rita Guðrún Jónsdóttir, Sigþrúður Guðmundsdóttir, Þorbjörg Inga Jónsdóttir, Anna Wozniczka, Una María Óskarsdóttir, Fríða Rós Valdimarsdóttir og Una Hildardóttir. Samtökin segjast hafa boðið Herði Helga Helgasyni, formanni Íslandsdeildarinnar, til fundar í gær þar sem hann fékk að kynnast viðhorfum samtakanna til vændis. „Á fundinum gaf formaðurinn ekki upp afstöðu Íslandsdeildar Amnesty og það veldur okkur áhyggjum,“ segir í yfirlýsingunni sem má lesa hér fyrir neðan:Friðhelgi fyrir dólga og vændiskaupendur?Amnesty International hefur í meira en fimmtíu ár unnið þrekvirki. Stuðlað að lífi án ofbeldis, réttlæti og mannréttindum um allan heim. Samtökin njóta mikils trausts og virðingar og von okkar er að svo megi verða áfram.Helgina 7.- 11. ágúst fundar alþjóðahreyfing Amnesty International í Dublin á Írlandi. Fyrir fundinum liggur tillaga um að Amnesty líti svo á að vændi eigi að gefa frjálst. Kaup, sala, milliganga um vændi og rekstur vændishúsa verður samkvæmt tillögunni látið óatalið. Allt í nafni mannréttinda fólks í vændi. Ef tillagan verður samþykkt eru það alvarleg mistök sem ganga þvert á þá mannréttindabaráttu sem Amnesty er þekkt fyrir.Að okkar mati er vændi ekki atvinnugrein. Vændi er ofbeldi og frjáls sala á fólki samræmist ekki okkar skilgreiningu á mannréttindum. Þar að auki er nær ógjörningur að skilja á milli vændis og mansals. Kaupendur hafa ekki hugmynd um hvort þær konur sem þeir kaupa, eru að selja sig af fúsum og frjálsum vilja eða þær eru gerðar út af manseljendum. Ef Amnesty vill uppræta mansal, er mikilvægt að samtökin geri sér grein fyrir að það verður ekki gert nema með því að minnka eftirspurn eftir vændi. Samhliða því þarf að bjóða upp á félagsleg úrræði fyrir þau sem stunda vændi og leiðir út.Í heiminum er tekist harkalega á um það hvernig nálgast eigi vændi. Sumstaðar eru bæði kaup og sala bönnuð. Þannig voru íslenskar konur í vændi sekar að lögum fram til ársins 2007. Annars staðar hefur vændi verið gefið frjálst og þekktustu dæmin um þá leið eru Þýskaland og Holland. Í þeim löndum hefur vændisiðnaðurinn vaxið mjög og í skjóli hans þrífst mansal sérlega vel. Í þeim löndum hefur líf kvenna í vændi ekki orðið öruggara, en dólgar, vændishúsaeigendur og vændiskaupendur hafa hins vegar stöðu heiðvirðra kaupmanna og viðskiptavina.Í Svíþjóð var vændi skilgreint sem ofbeldi gegn konunum sem það stunda og lög voru sett í samræmi við þann skilning árið 1999. Þannig var sala á vændi í lagi, en kaup á fólki ólögleg, svo og auðvitað milliganga um vændi og rekstur vændishúsa. Noregur og Ísland fóru að dæmi Svía árið 2009, eftir langa baráttu sameinaðrar kvennahreyfingar og fleiri aðila. Síðar hafa Kanada og Norður-Írland bæst í hópinn. Jafnréttisnefnd Evrópuþingsins lét gera úttekt á leiðum í baráttunni gegn vændi og mansali og samþykkti í framhaldi af því að mælast til þess við aðildarlöndin að þau færu að dæmi Svía og bönnuðu kaup á vændi.Norræna leiðin er þekkt um allan heim sem sú árangursríkasta og réttlátasta í baráttunni gegn vændi og mansali. Í Noregi þar sem lögunum hefur verið framfylgt er talið að vændi hafi minnkað um 25%. Þar hefur ofbeldi gegn fólki í vændi ekki aukist, eftirspurnin hefur minnkað og viðhorfsbreyting hefur átt sér stað. Viðhorfskönnun sem gerð var á Íslandi af Gallup árið 2008 sýndi að meiri hluti bæði karla og kvenna og meirihluti fólks í öllum þáverandi flokkum vildi banna kaup á vændi.Stígamót þjónusta fólk sem beitt hefur verið kynferðisofbeldi. Þar taka árlega 35-50 konur og nokkrir karlar þátt í sjálfshjálparstarfi vegna afleiðinga klámiðnaðarins. Afleiðingarnar eru sambærilegar við afleiðingar annars kynferðisofbeldis, þ.e.a.s. skömm, kvíði, þunglyndi, léleg sjálfsmynd og sjálfsvígshugsanir, en á ýmsa vegu ýktari. Þó ekki væri nema þess vegna, getum við í sameinaðri kvennahreyfingu ekki setið hjá og beðið þess sem verða vill í Dublin. Við buðum Herði Helga Helgasyni formanni Íslandsdeildarinnar til fundar við okkur þann 4. ágúst og kynntum honum viðhorf okkar. Á fundinum gaf formaðurinn ekki upp afstöðu Íslandsdeildar Amnesty og það veldur okkur áhyggjum.Ef Amnesty International mælir með að því að vændi verði gefið frjálst, er dólgum og vændiskaupendum þar með gefin friðhelgi og mannréttindi kvenna í vændi fótum troðin. Slík stefna myndi skaða þann mikilvæga trúverðugleika og það traust sem Amnesty nýtur í dag. Það má ekki gerast.Stígamót, Kvennaathvarfið, Kvennaráðgjöfin, Samtök kvenna af erlendum uppruna, Kvenfélagasamband Íslands, Kvenréttindafélagið, og Femínistafélag Íslands skora á Íslandsdeild Amnesty International að halda á lofti norrænu leiðinni í Dublin um helgina og beita sér af alefli fyrir því að tillagan um að vændi verði gefið frjálst verði felld.F. h. Stígamóta, Kvennaathvarfsins, Kvennaráðgjafarinnar, Samtaka kvenna af erlendum uppruna, Kvenfélagasambands Íslands, Kvenréttindafélagsins, og Femínistafélags ÍslandsGuðrún JónsdóttirSigþrúður GuðmundsdóttirÞorbjörg Inga JónsdóttirAnna WozniczkaUna María ÓskarsdóttirFríða Rós ValdimarsdóttirUna Hildardóttir
Tengdar fréttir Amnesty International ræðir afglæpavæðingu vændis á ársfundi sínum Ráðstefnan hefur mætt andspyrnu víða um heim. 3. ágúst 2015 13:24 Amnesty styðji við lögleiðingu vændis Fyrir aðalþingi alþjóðasamtaka Amnesty liggur umdeild tillaga um að samtökin styðji við lögleiðingu vændis í heiminum. 4. ágúst 2015 07:00 Afglæpavæðing vændis aðeins eitt mála á dagskrá ársþings Amnesty Framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International segir villandi að tala um fund um afglæpavæðingu vændis. 3. ágúst 2015 16:39 Mest lesið Eins og að vera staddur í martröð og geta ekki vaknað Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Innlent Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Innlent Jöfnuðu fjölbýlishús við jörðu um miðja nótt Erlent Spennandi og sögulegar kosningar: Fjórir flokkar berjast fyrir lífi sínu í fallbaráttu Innlent Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Innlent „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Innlent Hlutverk flokksforingja stórlega ofmetið í kosningabaráttunni Innlent KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ Innlent Fleiri fréttir Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Spennandi og sögulegar kosningar: Fjórir flokkar berjast fyrir lífi sínu í fallbaráttu „Dapurlegt“ útspil kennara og opnun Bláa lónsins Sigmundur fjarverandi allar atkvæðagreiðslur Styrkja möstrin með möl eftir góða vinnu í nótt Eins og að vera staddur í martröð og geta ekki vaknað Hlutverk flokksforingja stórlega ofmetið í kosningabaráttunni Braut rúðu í lögreglubíl Stöðugt gos og engir skjálftar „RÚV er sá fjölmiðill sem er líklega einna lengst til vinstri á Íslandi“ Ætla að opna Bláa lónið 29. nóvember Rafmagnsmastur í hættu vegna hraunflæðis Segist svikin af Viðreisn og segir sig úr flokknum Tilbúin að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Boða verkföll í tíu leikskólum í desember Í beinni frá gosstöðvum, undrun á vegferð seðlabankans og lokasprettur Atburðarás gærdagsins í myndum Eldri maður á gamalli Corollu ógnaði ekki lífi hjóna á nýjum Ram Virkni í þremur gígum og mest í miðjunni Mikill meirihluti vill ekki sjá sjókvíaeldi í Seyðisfirði Segir íbúafundinn ekki hafa verið nægilega upplýsandi FA klagar Willum Þór til umboðsmanns Með hundruð kílóa af þýfi heima hjá sér Bílar og byggingariðnaður losar mest í Reykjavík Sjá meira
Amnesty International ræðir afglæpavæðingu vændis á ársfundi sínum Ráðstefnan hefur mætt andspyrnu víða um heim. 3. ágúst 2015 13:24
Amnesty styðji við lögleiðingu vændis Fyrir aðalþingi alþjóðasamtaka Amnesty liggur umdeild tillaga um að samtökin styðji við lögleiðingu vændis í heiminum. 4. ágúst 2015 07:00
Afglæpavæðing vændis aðeins eitt mála á dagskrá ársþings Amnesty Framkvæmdastjóri Íslandsdeildar Amnesty International segir villandi að tala um fund um afglæpavæðingu vændis. 3. ágúst 2015 16:39