Bíó og sjónvarp

Captain Kirk kemst enn og aftur í hann krappan

Samúel Karl Ólason skrifar
Chris Pine í hlutverki Captain Kirk.
Chris Pine í hlutverki Captain Kirk.
Paramount Pictures birtu í dag fyrstu stikluna fyrir myndina Star Trek Beyond. Þetta er þriðja myndin síðan að sagan um skipstjórann James Tiberius Kirk var endurvakin og fyrsta myndin sem JJAbrams leikstýrir ekki. Að þessu sinni er það Justin Lin sem leikstýrir þeim Chris Pine og félögum.

Lin er hvað þekktastur fyrir að leikstýra og framleiða Fast & Furious myndum. Nánar tiltekið þá leikstýrði hann þeirri þriðju, fjórðu, fimmtu og sjöttu.

Stiklan gefur til kynna að myndin muni halla að hasarnum og hefur Það fengið misjafnar móttökur ef mark má taka af athugasemdakerfum. Dæmi hins vegar hver fyrir sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×