Innlent

Átta flugvélar Icelandair neyðst til að lenda á Reykjavíkurflugvelli síðasta áratug

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Frá Reykjavíkurflugvelli
Frá Reykjavíkurflugvelli vísir/vilhelm
Aðeins átta flugvélar neyddust til þess að lenda á Reykjavíkurflugvelli á árunum 2005-2014 eða að meðaltali minna en ein flugvél á ári. Þetta er meðal þess sem kemur fram í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn þingmannsins Helga Hrafns Gunnarssonar.

Flugáætlanir berast í rafrænum skeytum og taka til atriða eins og flugleiðar, gerðar vélar, fjölda farþega, komutíma, varaflugvallar ef á þarf að halda og fleiri þátta. Til viðbótar berst síðan nokkur fjöldi afboðana en meginreglan er að í þeim kemur ekki annað fram en að fallið hafi verið frá fyrirhugaðri lendingu. Aðrar upplýsingar eins og ástæður og hvert flogið verði í staðinn eru alla jafna ekki gefnar.

Í svarinu kemur fram að þessar upplýsingar hafi hingað til ekki verið kerfisbundið skráðar. Til að gefa hugmynd um í hve algengt þetta væri var haft samband við Icelandair sem veitti upplýsingar um hve oft vélar, sem áttu að lenda á Keflavíkurflugvelli, lentu í Reykjavík. Ástæðan var oftast veður.

Flestar lendingar á Reykjavíkurflugvelli áttu sér stað árið 2010, alls þrjár. Það sem af er ári hafa tvær vélar neyðst til að lenda í Reykjavík.

Í svarinu er einnig tekið fram hve margar vélar hafa lent á Akureyri og Egilsstöðum. Þrettán vélar hafa þurft að lenda á síðarnefnda vellinum árin 2005-2014 og átta vélar á Akureyri á sama tíma. Flestar lendingar á öðrum stað en upphaflega var áætlað áttu sér stað árið 2008 þegar tíu vélar lentu á öðrum stað. Árin 2006 og 2013 þurfti engin vél að gera það.

Helgi Hrafn spurði einnig um hve margar flugvélar hafa lent á Keflavíkurflugvelli undanfarin tuttugu ár. Svar ráðherra tekur fram hve margar vélar lenda og takast á loft. Athyglisvert er að þrefalt fleiri hreyfingar voru árið 2014 heldur en árið 1995.

Almannaflug spannar annað borgaralegt flug til landsins en farþega- eða vöruflug og er þar í flestum tilfellum um flug einkaflugvéla að ræða. Undir yfirskriftinni aðrar hreyfingar eru taldar snertilendingar, þ.e. æfinga- og kennsluflug bæði borgaralegra flugvéla og herflugvéla. Að öðru leyti er allt inn­an­lands­flug og allt ríkisflug, t.d. á vegum Landhelgisgæslunnar, sett í þennan dálk.

Undanfarin tuttugu ár hafa 1.271.292 hreyfingar, en hreyfing telst sem flugtak og lending, átt sér stað á Keflavíkurflugvelli. Þá eru hreyfingar þessa árs taldar með.


Tengdar fréttir

Styðja að borgin verði svipt valdi yfir flugvelli

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs, en þar er Egilsstaðaflugvöllur, samþykkti í dag að lýsa yfir stuðningi við lagafrumvarp þess efnis að skipulagsvald Reykjavíkurflugvallar verði í höndum ríkisvaldsins, líkt og gildir um Keflavíkurflugvöll.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×