Lífið

Kona með Asperger fær taugaáfall en hundurinn róar hana niður

Stefán Árni Pálsson skrifar
Danielle Jacobs er með Asperger.
Danielle Jacobs er með Asperger. vísir
Magnað myndskeið hefur vakið mikla athygli á YouTube en þar sést hundur róa niður eiganda sinn sem er kona með Asperger-heilkenni.

Danielle Jacobs er með Asperger og ákvað að taka upp á myndband þegar hún brotnaði saman og fékk einskonar taugaáfall.

„Svona er að hafa Asperger, þetta gerðist fyrir mig í alvörunni,“ segir hún.

„Það er ekki auðvelt að tjá mig um þessa hluti og opna mig svona mikið. Þetta er það sem ég kalla, taugaáfall. Ég er búin að þjálfa hundinn minn til að bregðast svona við þegar ég fæ svona köst.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×