Lífið

Kötturinn ætlaði að sníkja sér far með flugvél - Ótrúlegt myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þetta þurfa menn greinilega að skoða.
Þetta þurfa menn greinilega að skoða.
Áður en flugvél tekur á loft er nauðsynlegt að fara yfir öll öryggisatriði. Þetta er nokkuð strangt ferli og eru margir þættir skoðaðir.

Það er kannski ekki venjan að athuga hvort dýr sé ofan á vængjum vélarinnar en á dögunum lentu tveir aðilar í því að verða varir við kött ofan á væng vélarinnar, og það í háloftunum.

Flugmaðurinn tók fljótlega eftir kettinum og lenti eins snögglega og hann gat. Hér að neðan má sjá myndband af atvikinu en Mashable greinir frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×