Bíó og sjónvarp

Glænýtt plakat kvikmyndarinnar Bakk

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Plakatið fyrir Bakk.
Plakatið fyrir Bakk. mynd/ómar hauksson og árni filippusson
Vísir hefur fengið í hendurnar glóðvolgt plakat fyrir kvikmyndina Bakk sem frumsýnd verður í byrjun maí. Leikstjórn er í höndum Gunnars Hanssonar og Davíðs Óskars Ólafssonar.

Hönnun plakatsins var í höndum Ómars Haukssonar en um myndatöku sá Árni Filippusson. Kvikmyndatakan var einnig í umsjá hans.

Leikararnir sem fengnir hafa verið í verkið eru ekki af verri endanum. Má þar nefna Ólaf Darra Ólafsson, Nínu Dögg Filippusdóttur, Ágústu Evu Erlendsdóttur, Halldór Gylfason, Þorstein Guðmundsson, Ólafíu Hrönn Jónsdóttur og Hallgrím Ólafsson. Einnig eru þar ný nöfn á borð við Salóme Rannveig Gunnarsdóttir og Kolbeinn Arnbjörnsson. Gunnar Hansson leikur síðan eitt aðalhlutverkanna auk þess að leikstýra.

Myndin er gamanmynd og fjallar um tvo vini sem ákveður að bakka hringveginn. Gunnar Hansson hefur sagt að hann hafi gengið með hugmyndina að myndinni í maganum í tólf ár áður en hann hófst loksins handa við að gera hana.

Þetta er mögulega í fyrsta skipti sem einhver bakkar hringveginn á hvíta tjaldinu en árið 1981 bakkaði Hallgrímur Marínósson veginn og safnaði um leið áheitum til styrktar góðu málefni.


Tengdar fréttir

Bakka hringveginn

Ný íslensk gamanmynd er væntanleg en hún ber nafnið Bakk. Í myndinni bakka aðalleikarar myndarinnar hringinn í kringum landið og lenda í ýmsu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.