Lífið

Fjölnir og Þóra Steina eiga von á barni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Fjölnir og Þóra saman í fríi á Spáni á síðasta ári.
Fjölnir og Þóra saman í fríi á Spáni á síðasta ári. vísir
Íslenski draumurinn Fjölnir Þorgeirsson, sem heldur úti vefnum Hestafréttir.is og unnustan hans, viðskiptafræðingurinn Þóra Steina Jónsdóttir, eiga von á barni.

Þessu greinir Þóra frá á Facebook-síðu sinni en parið kynntist í maí árið 2014. Nítján ára aldursmunur er á þeim skötuhjúum en ástin spyr ekki um aldur.

Sjá einnig: Fjölnir með ástinni á Spáni

„Nú er það formlega staðfest að strumpastrætó er kominn á innkaupalistann... Lítið kríli er væntanlegt í lok mars,“ segir  Þóra Steina á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×