Lífið

Britney Spears hefur náð sér af ökklameiðslunum

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Britney Spears á sviði
Britney Spears á sviði vísir/getty
Aðdáendur  Britney Spears geta andað léttar en söngkonan hefur náð sér af ökklameiðslum sem hún varð fyrir er hún féll á sviði á tónleikum í Las Vegas. Í kjölfarið þurfti hún að hætta við þrenna tónleika sem voru á dagskránni. Þessu greinir hún frá á Twitter síðu sinni.

Söngkonan hefur notast við spelku undanfarna viku en er nú laus við hana. Hún verður klædd í ökklahlíf til að koma sér í gegnum næstu tónleika.  Myndband af því þegar hún féll við má einnig sjá í fréttinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.