Menning

Nótur öðlast nýtt líf hjá nýjum eigendum

Magnús Guðmundsson skrifar
Jón Hrólfur Sigurjónsson og Bjarki Sveinbjörnsson flokka og raða bókunum.
Jón Hrólfur Sigurjónsson og Bjarki Sveinbjörnsson flokka og raða bókunum.
Næsta laugardag kl. 12-15 mun Tónlistarsafn Íslands bjóða hverjum þeim sem áhuga hefur að eignast, gegn mjög vægu gjaldi, tónlistarbækur og nótur af ýmsum toga. Þetta er frábært tækifæri fyrir alla tónlistarmenn að næla sér í sitthvað skemmtilegt gegn vægu verði.

Bjarki Sveinbjörnsson hjá Tónlistarsafninu segir að hér sé um að ræða efni sem safninu hefur borist í gegnum árin en henti ekki varðveislustefnu þess.

„Tónlistarsafn, líkt og önnur söfn, fær til sín mikið efni til varðveislu á hverju ári, en um leið áskilur það sér rétt til að meta hvað hefur varðveislugildi, hverju verður komið í umferð á ný og hverju verður fargað. Er þessi bóka- og nótnabasar liður í þeirri viðleitni, en um leið aðferð til að styrkja starfsemi safnsins. Við viljum vissulega að sem mest af þessu rati til tónlistarmanna og nýtist þeim sem best.

Allt efni verður því selt á vægu verði, frá 100 krónum og upp í 2.000 krónur. Best er ef fólk tekur með sér staðgreiðslufé, en þó verður einnig tekið á móti greiðslum með kortum.“

Tónlistarsafn Íslands er til húsa að Hábraut 2 í Kópavogi, gegnt Salnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×