Bíó og sjónvarp

Gleðistundir á Grænlandi

Rikka skrifar
Skákfélagið Hrókurinn vinnur markvisst að því að kynna sem flesta fyrir skákíþróttinni, markmiðið er að vekja upp gleðistundir sem víðast. Liðsmenn félagsins hafa farið í flesta skóla hérlendis og gáfu á tímabili tuttugu og fimm þúsund íslenskum  börnum skákkennslubók að gjöf.  Félagið hefur einnig haldið úti starfsemi á Grænlandi undanfarin tíu ár og hafa Hróksmenn glatt grunnskólabörn með gjöfum auk þess að kenna þeim listina að tefla.

Frá því í fyrra hafa þeir svo safnað fatnaði fyrir efnaminni börn í landinu. Söfnunin hefur farið fram með reglulegu millibili hérlendis og hafa fötin komið að góðum notum hjá nágrönnum okkar á Grænlandi.

Í meðfylgjandi myndbandi sjáum við brot úr þættinum en Hjálparhönd er sýndur á þriðjudagskvöldum á Stöð 2.


Tengdar fréttir

Það var einhver sem hélt í höndina á mér

Í síðasta þætti af Hjálparhönd kynntumst við feðginunum Sigga og Láru sem hafa nýlokið þjálfun hjá Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Þau deila með okkur reynslu sinni af starfinu og Siggi svarar því hvernig tilfinning það sé að senda barnið sitt út í óvissuna þegar mikið liggur við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×