Lífið

Dion snýr aftur í ágúst

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Céline Dion mun halda 40 tónleika í Las Vegas í haust.
Céline Dion mun halda 40 tónleika í Las Vegas í haust.
Stórsöngkonan Céline Dion hefur tilkynnt að hún muni halda tónleika aftur í Las Vegas í ágúst á þessu ári. Í fyrra þurfti hún að aflýsa tónleikum vegna veikinda eiginmanns hennar, Réne Angélil, en hann berst við krabbamein í hálsi.

„Ég lofaði honum að ég myndi byrja aftur að syngja. Þetta verður erfitt, en ég er búin að segja við hann að hann verði í salnum þegar ég syng á tónleikunum. Ég er hrædd um að missa hann, en ég verð að sýna honum og strákunum okkar að ég sé sterk og þetta sé allt í lagi,“ segir Dion í viðtali við tímaritið People.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.