Lífið

Íslenskur „Kettlingur“ hefur unnið 19 milljónir í póker á árinu

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Íslendingurinn sem gerir það gott í pókerheiminum á netinu kallar sig Kettlingur og er úr Kópavogi.
Íslendingurinn sem gerir það gott í pókerheiminum á netinu kallar sig Kettlingur og er úr Kópavogi.
Íslenskur pókerspilari hefur unnið 19 milljónir á árinu í stórum mótum sem spiluð eru í gegnum netið. 2015 hefur verið gæfuríkt fyrir þennan spilara sem kallar sig Kettlingur.

„Kettlingurinn“ á þrítugsaldri og er búsettur í Kópavogi.

„Kettlingurinn“ íslenski spilar póker á nokkrum stærstu pókersíðum heims. Þar má finna mörg fjölmenn mót, en þau stærstu eru gjarnan haldin á sunnudögum. Fyrsta sunnudags ársins hófst einmitt ævintýri hins íslenska pókerspilara.

Þann fjórða janúar endaði hann í þríðja sæti í móti sem kallast Big 22. Nafnið vísar til innkaupsverðsins, sem er 22 Bandaríkjadalir, sem er eru rímlega 2600 krónur. Þátttakendur í mótinu voru yfir átta þúsund manns og vann hann sér inn þrettán þúsund dollarar. Eins og gengið er skráð núna eru það 1,7 milljónir króna.

Tveimur vikum síðar tók „Kettlingurinn“ þátt í vinsælasta og stærsta móti vikunnar. Það mót kallast Sunday Million. Spilarar þurfa að reiða fram tæpar þrjátíu þúsund krónur til að fá að vera með. Í þessu tiltekna móti tóku 7200 manns þátt. Að sögn íslenskra pókeráhugamanna var spilamennska „Kettlingsins“ frábær á mótinu og komst hann á ótrúlegan hátt á lokaborð keppninnar. Hann endaði í öðru sæti á mótinu og fékk 94 þúsund dali í sinn hlut fyrir vikið. Það eru um 12,5 milljónir íslenskra króna.

Í gærkvöld og í nótt hélt sigurganga „Kettlingsins“ áfram. Hann tók þátt í mótinu Sunday 500. Þar kostar hvorki meira né minna en um 70 þúsund krónur að taka þátt. Hátt innkaupsverð gerir það að verkum að spilarar eru færri á þessu móti, en yfirleitt taka eingöngu reynslumiklir spilarar þátt. „Kettlingurinn“ endaði í þriðja sæti mótsins og náði sér í rétt tæpar fimm milljónir króna í sigurlaun, eða 37 þúsund dali.

Séu sigurlaun kettlingsins á árinu lögð saman ná þau rétt tæpum nítján milljónum króna, þrátt fyrir að árið sé rétt nýhafið.

Mikill fjöldi Íslendinga stundar póker á netinu á hinum ýmsu pókersíðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×