Lífið

Er rómantísk og raunsæ

Gwyneth Paltrow reynir að dæma ekki annað fólk.
Gwyneth Paltrow reynir að dæma ekki annað fólk.
Gwyneth Paltrow trúir á sanna ást og segist sjálf vera mjög rómantísk.

„Ég er mjög rómantísk, en ég get verið raunsæ líka,“ sagði hin 42 ára leikkona við tímaritið OK!.

„Lífið er flókið og langt. Stundum gerirðu eitthvað sem aðrir eiga eftir að fordæma og það er þeirra vandamál. Því meira sem ég lifi lífinu, því meira læri ég að dæma ekki annað fólk vegna þess sem það gerir. Flest okkar eru að reyna sitt besta,“ sagði Paltrow sem skildi við söngvarann Chris Martin í mars eftir tíu ára hjónaband.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×