Bíó og sjónvarp

Pottþétt fleiri Hungurleika

Jennifer Lawrence vill halda áfram að leika í Hungurleikunum.
Jennifer Lawrence vill halda áfram að leika í Hungurleikunum. Vísir/Getty
Jennifer Lawrence segist endilega vilja leika í fleiri myndum um Hungurleikana.

Þessa dagana er hún að leika í fjórðu myndinni, The Hunger Games: Mockingjay – Part II. Henni finnst erfitt að geta ekki eytt meiri tíma með mótleikurum sínum Liam Hemsworth og Josh Hutcherson.

„Ég á líklega eftir að klára eina töku fyrir Hungurleikana. Við eigum bara eitt atriði eftir og ég er alls ekki ánægð með það. Ég myndi pottþétt leika í fleiri myndum. Liam er að leika í mynd í Ástralíu í tvo mánuði. Það er lengsti tíminn sem við þrjú höfum verið aðskilin.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×