Handbolti

Haukarnir slökktu í Pétri í úrslitaeinvíginu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Pétur var í strangri gæslu hjá varnarmönnum Hauka í úrslitaeinvíginu.
Pétur var í strangri gæslu hjá varnarmönnum Hauka í úrslitaeinvíginu. vísir/ernir
Haukar sýndu mátt sinn og megin í úrslitakeppninni í handbolta sem lauk í fyrradag. Haukar unnu alla átta leiki sína í úrslitakeppninni og tryggðu sér sinn tíunda Íslandsmeistaratitil með sigri á Aftureldingu í þriðja leik liðanna í lokaúrslitunum á mánudaginn.

Haukar spiluðu frábæran varnarleik í úrslitakeppninni og fengu aðeins á sig 156 mörk í leikjunum átta, eða 22,5 mörk að meðaltali í leik. Í úrslitaeinvíginu fengu Haukar aðeins á sig 20,7 mörk að meðaltali í leik. Það vakti sérstaka athygli hversu vel vörn Hafnfirðinga gekk að halda aftur af Pétri Júníussyni, línumanni Aftureldingar.

Pétur spilaði frábærlega í undanúrslitaeinvíginu gegn ÍR og skoraði þar 26 mörk, eða 5,2 mörk að meðaltali í leik. Hann var sérstaklega heitur í síðustu þremur leikjunum þar sem hann gerði 21 mark en þar af komu níu í oddaleiknum að Varmá sem Mosfellingar unnu 30-29. Pétur var svo verðlaunaður fyrir frammistöðuna með sæti í landsliðshópnum fyrir leikina gegn Serbíu.

Matthías Árni Ingimarsson, fyrirliði Hauka, var öflugur í vörninni í úrslitakeppninni.vísir/erni
Haukarnir lögðu greinilega sérstaka áherslu á að stoppa Pétur því hann skoraði aðeins þrjú mörk í leikjunum þremur í úrslitunum; eitt í fyrsta leiknum, ekkert í öðrum leiknum og tvö í þeim þriðja.

Hann fór semsagt því úr því að skora 5,2 mörk að meðaltali gegn ÍR í 1,0 mark að meðaltali gegn Haukum. Pétur tók aðeins sex skot í öllu einvíginu við Hauka og fiskaði aðeins tvö vítaköst.

Vissulega söknuðu Mosfellingar Jóhanns Gunnars Einarssonar sem var duglegur að dæla boltanum inn á línuna í vetur en varnarmenn Hauka fá engu að síður stórt prik í kladdann fyrir framgöngu sína í úrslitunum.

Haukavörnin, með þá Jón Þorbjörn Jóhannsson og Matthías Árna Ingimarsson í broddi fylkingar, hélt einnig aftur af landsliðsmanninum Kára Kristjáni Kristjánssyni í undanúrslitaleikjum við Val.

Kári, sem gekk í raðir ÍBV í gær, skoraði 10 mörk í leikjunm þremur í undanúrslitunum, eða 3,3 mörk að meðaltali í leik. Til samanburðar skoraði Kári 4,0 mörk að meðaltali í leik í deildarkeppninni.

Það má því segja að Haukarnir hafi slökkt í einum núverandi og einum verðandi línumanni í landsliðinu í úrslitakeppninni.


Tengdar fréttir

Örn Ingi markahæstur í úrslitakeppninni

Keppnistímabilinu í handboltanum lauk í gær þegar Haukar tryggðu sér sinn tíunda Íslandsmeistaratitil eftir sigur á Aftureldingu í þriðja leik liðanna í lokaúrslitum.

Lykilinn er að vera tilbúinn að læra af öðrum

Patrekur Jóhannesson gerði Hauka að Íslandsmeisturum á mánudagskvöldið þegar liðið lauk fullkominni úrslitakeppni með því að sópa Aftureldingu í lokaúrslitum. Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Patreks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×