Handbolti

Lykilinn er að vera tilbúinn að læra af öðrum

Óskar Ófeigur Jónsson og Tómas Þór Þórðarson skrifar
Patrekur vann alla þá titla sem í boði eru á tveimur árum sem þjálfari Hauka.
Patrekur vann alla þá titla sem í boði eru á tveimur árum sem þjálfari Hauka. vísir/ernir
Ég fór bara heim, náði í konuna og við skelltum okkur á Ásvelli þar sem var móttaka fyrir liðið. Það var samt skóli hjá krökkunum daginn eftir þannig við vorum bara til tólf,“ segir ­Patrekur Jóhannesson, þjálfari Íslandsmeistara Hauka í handbolta, léttur og kátur í viðtali við Fréttablaðið.

Haukar lyftu Íslandsbikarnum í tíunda sinn í sögu félagsins að Varmá á mánudaginn og í níunda sinn síðan árið 2000. Sigurganga liðsins hefur verið ótrúleg.

„Lokahófið hjá yngri flokkunum byrjar klukkan fimm og svo er hjá okkur í kvöld [gærkvöld]. Maður verður kannski aðeins lengur í kvöld enda eiga menn auðvitað að fagna þessum árangri.“

Vissi að þetta myndi lagast

Haukarnir voru ekki góðir fyrir áramót og að berjast í neðri helmingi deildarinnar. Þeir komu sterkir inn eftir áramót og fóru svo í gegnum úrslitakeppnina án þess að tapa einum einasta leik.

„Ég vissi alltaf skýringarnar á þessu. Tjörvi var ekki heill, ekki Janus heldur og Adam var að spila sitt fyrsta tímabil sem aðalskytta. Elías Már var líka farinn þannig að ég gerði mér alveg grein fyrir því að þessar breytingar myndu taka sinn tíma,“ segir Patrekur sem hafði þó fulla trú á að hlutirnir myndu komast í lag.

„Það þurfti bara að púsla þessu saman. Það voru margir efins framan af en ekki ég, ekki Þorgeir formaður og ekki Óskar aðstoðarþjálfarinn minn. Ég settist niður með liðinu eftir tap gegn Aftureldingu í desember og ég fann að allir voru tilbúnir að stefna á það sama. Við fórum líka bara strax í gang eftir HM og töpuðum ekki mörgum leikjum,“ segir hann.

Til alvarlegri hlutir en að tapa

Patrekur var hársbreidd frá því að vinna Íslandsmeistaratitilinn í fyrra en tapaði á sigurmarki ­Agnars Smára Jónssonar á síðustu sekúndu leiksins.

„Það var erfið stund enda vorum við fjórum mörkum yfir í seinni hálfleik og höfðum verið betra liðið allt tímabilið. Ég var kannski aðallega svekktur þegar ég sá þetta aftur því hann stökk svona langt inn í teig,“ segir Patrekur og hlær við. Hann staldraði ekki lengi við það grátlega tap.

„Það er nú bara þannig að ég er alltaf jafn einbeittur á næstu æfingu og strax eftir leik þurfti ég að fara að gera hluti klára fyrir leiki með Austurríki. Ég er ekkert í því að fara að væla eftir leiki og gerði það ekki heldur sem leikmaður. Það eru til verri hlutir í lífinu en að tapa handboltaleik með einu marki,“ segir Patrekur.

Patrekur fagnar ásamt Árna Steini Steinþórssyni og Jóni Þorbirni Jóhannssyni.vísir/ernir
Titlar segja ekki allt

Þrátt fyrir langan og farsælan feril var Íslandsmeistaratitillinn sem Patrekur fagnaði á mánudagskvöldið sá fyrsti sem hann vinnur.

Hann fór tvisvar í úrslit sem leikmaður KA á tíunda áratugnum en tapaði í bæði skiptin fyrir Val áður en kom að tapinu gegn ÍBV í fyrra.

„Auðvitað er ánægjulegt að vinna þetta loksins. Silfrin tvö með KA voru svekkjandi. Við unnum ekki titilinn þá en liðið var samt tilnefnt sem eitt besta handboltalið sögunnar sem segir sitt. Sumir þjálfarar og leikmenn komast aldrei í úrslitaleiki en ég var áður búinn að vinna bikarinn fimm sinnum,“ segir Patrekur sem segist alveg hafa getað lifað án Íslandsbikarsins á ferilskránni.

„Auðvitað segja titlar ýmislegt en þeir segja ekki alla söguna. Hefðu það verið mín örlög að vinna titilinn aldrei hefði það bara þurft að vera þannig. Þetta er svo mörgum breytum háð eins og með hvaða liðum menn spila.“

Alltaf að læra

Þjálfaraferillinn fór hægt af stað hjá Patreki en hann hefur náð miklum árangri undanfarin misseri. Hann viðurkennir að hann sé búinn að þroskast mikið sem þjálfari.

„Mér finnst ég vera á réttri leið núna. Þegar ég kom heim 2005 og hætti sem atvinnumaður fór ég í nám. Á þeim tíma hélt ég að ég vissi þetta allt saman sem var bara algjör vitleysa. Auðvitað lendir maður í ýmsu en lykillinn er að vera alltaf tilbúinn að læra af öðrum,“ segir Patrekur og heldur áfram:

„Ef menn eru að væla yfir einhverju sem þeir lenda í eða eftir tapleiki eiga þeir bara að snúa sér að einhverju öðru. Ég veit alveg að ég kann þessa íþrótt en hvort ég muni alltaf vera vinnandi titla kemur bara í ljós. Það tekur enginn af mér það sem ég hef unnið í dag,“ segir Patrekur Jóhannesson.


Tengdar fréttir

Örn Ingi markahæstur í úrslitakeppninni

Keppnistímabilinu í handboltanum lauk í gær þegar Haukar tryggðu sér sinn tíunda Íslandsmeistaratitil eftir sigur á Aftureldingu í þriðja leik liðanna í lokaúrslitum.

Fullkomin kveðjugjöf

Haukar gáfu Patreki Jóhannessyni, þjálfara sínum, fullkomna kveðjugjöf í gær eftir að liðið tryggði sér sinn tíunda Íslandsmeistaratitil í sögu félagsins með þriggja marka sigri á Aftureldingu í Mosfellsbæ, 27-24.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×