„Ég ætla bara að færa mig um stað í kjördæminu,“ segir hann og tekur fyrir að hann sé að flytja í höfuðborgina.
„Þá fengi ég nú malbikseitrun um leið,“ svarar hann léttur í bragði.

„Þetta er alltof stórt fyrir mig og konuna,“ segir Ásmundur.
„Þetta er gullið tækifæri fyrir þá sem eiga fullt af börnum eins og ég,“ segir hann. Öll börnin eru þó flutt af heiman og eru þau nú bara tvö eftir.
„Við erum bara tvö í kotinu með einn lítinn hund.“

Á myndum af húsinu á fasteignavef Vísis má sjá að í svefnherbergi þeirra hjóna er málverk af Ásmundi.
Hana fékk hann að gjöf frá vini sínum.
„Þetta var nú félagi minn og vinur í Garðinu, sem heitir Bragi Einarsson, hann málaði þessa mynd af mér og gaf mér hana og ég endurgalt honum vináttuna með því að teikna af honum mynd og gefa honum hana,“ segir Ásmundur sem er liðtækur teiknari.

Hægt er að skoða fleiri myndir og kynna sér eignina nánar á fasteignavef Vísis.
