Ævintýri fjölþjóðalandsliðs Katar í handbolta hélt áfram í dag er liðið tryggði sér farseðilinn í úrslitaleik HM. Það sá enginn fyrir að gæti gerst.
Katar skellti þá Póllandi, 31-29, í undanúrslitaleik. Staðan í hálfleik var 16-13 fyrir Katar.
Landslið Katar hefur vaxið með hverjum einasta leik og liðið sem hefur best náð 16. sæti á HM (Portúgal 2003) er nú komið í úrslit.
Rafael Capote og Kamalaldin Mallash skoruðu báðir sex mörk fyrir Katar. Michal Jurecki langbestur í liði Pólverja með átta mörk.
Katar spilar við annað hvort Frakkland eða ríkjandi meistara frá Spáni í úrslitaleiknum.
Valero Rivera, þjálfari Katar, getur því orðið meistari annað mótið í röð en hann gerði Spánverja að heimsmeisturum fyrir tveim árum síðan.
