Formúla 1

Sebastian Vettel á ráspól í Singapúr

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Sebastian Vettel náði ógnar hröðum hring og ráspól undir flóðljósunum.
Sebastian Vettel náði ógnar hröðum hring og ráspól undir flóðljósunum. Vísir/Getty
Sebastian Vettel á Ferrari náði ráspól, Daniel Ricciardo á Red Bull varð annar og Kimi Raikkonen á Ferrari varð þriðji.

Þetta var fyrsti ráspóll Vettel fyrir Ferrari og fyrsti ráspóll Ferrari í þurru síðan 2010.

Mercedes og Lewis Hamilton misstu af metum með því að missa af ráspól.

Fimm sinnum í síðustu sjö keppnum í Singapúr hefur ökumaðurinn á ráspól unnið keppnina. Erfitt er að taka fram úr á brautinni. Breytingar hafa þó verið gerðar til að reyna að auka fram úr akstur.

Vettel var fljótastur á Ferrari í fyrstu lotu. Báðir Mercedes ökumenn þurftu að setja ofur mjúku dekkin undir.

Ricciardo á mjúkum dekkjum átti góða tímatöku.Vísir/Getty
Einungis Ferrari ökumennirnir og Daniel Ricciardo á Red Bull komust upp með að nota bara mjúk dekk í fyrstu lotu. Það gæti komið sér vel í keppninni sem verður væntanlega tveggja stoppa keppni. Hugsanlega verða stoppin þrjú.

Ökumenn Sauber og Manor komust ekki áfram. Sama gildir um Pastor Maldonado á Lotus.

Önnur lota einkenndist af baráttu Ferrari og Red Bull. Það var ljóst í hvað stefndi í þriðju lotunni.

Carlos Sainz missti stjórn á Toro Rosso bílnum þegar önnur lotan var að klárast. Hann datt út ásamt McLaren mönnum og Force India.

Vettel leiddi baráttuna eftir fyrstu tilraun í þriðju lotu, Ricciardo var annar og Raikkonen þriðji á undan Daniil Kvyat sem var fjórði. Þeir voru allir á sömu hálfu sekúndunni.

Hér fyrir neðan má sjá öll helstu úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti sem uppfærist eftir því sem líður á.


Tengdar fréttir

Rossi tekur sæti Merhi hjá Manor

Alexander Rossi mun keyra fyrir Manor liðið í næstu fimm keppnum. Fyrsta keppnin verður í Singapúr um komandi helgi.

Rosberg notar síðustu vélina í Singapúr

Nico Rosberg, ökumaður Mercedes liðsins mun byrja að nota fjórðu vélina á tímabilinu í Singapúr um helgina. Það er síðasta nýja vélin sem hann má nota án þess að hljóta refsingu fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×