Lífið

Ólíklegt að sumarið komi á mánudaginn

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Það verður talsverður munur á veðrinu þann 2. maí árið 2011 og árið 2015 samkvæmt veðurspá.
Það verður talsverður munur á veðrinu þann 2. maí árið 2011 og árið 2015 samkvæmt veðurspá. myndir/veður.is
Íslendingar eru greinilega orðnir langþreyttir á vetrinum sem engan endi virðist ætla að taka en í dag hefur frétt Vísis frá því fyrir fjórum árum farið á flug. Fyrirsögn fréttarinnar er „Sumarið kemur á mánudaginn.“ Fréttin var hins vegar birt þriðjudaginn 26. apríl 2011 en ekki mánudaginn 27. apríl 2015.

Í samtali við Vísi segir veðurfræðingurinn Trausti Jónsson að aprílmánuðurinn sem nú er að renna sitt skeið sé sá kaldasti í 25 ár. Sem stendur er ekkert sem bendir til annars en að einhver bið verði enn eftir sumrinu. Sú gula gæti sýnt sig örlítið næstu daga en sé litið á norska langtímaspá fyrir höfuðborgarsvæðið er líklegt að næsta mánudag verði væta og vindur í kringum tólf metra á sekúndu. Það er því ólíklegt að sumarið komi á mánudaginn.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.