Platan er komin út víða en One Little Indian gefur hana út í Evrópu fyrst svo fylgja aðrar heimsálfur eftir en Smekkleysa á Íslandi.
Í upphafi var hljómsveitin teknó/elektrónískt dúó, Captain Fufanu sem varð til þegar Hrafnkell Kaktus Einarsson og Gulli voru enn táningar. Stefnan tók stakkaskiptum og hljómsveitin tók upp strauma sem leiða hugann til hins myrka evrópska stíls á 8. og 9. áratugnum.
Hljómsveitin og hennar stefna breyttist árið 2013 og fleiri meðlimir komu í sveitina, sem hefur undanfarið ár verið ákaflega iðin við tónleikahald. Með sveitinni spila fleiri menn í dag.
„Við vorum sex á túrnum með John Grant og verðum sex eitthvað áfram, Erling Bang, Einar Helgason, Karl Torsten Ställborn og Jón Atli Helgason og við Kaktus,” bætir Gulli við.
Eins og fyrr segir hefur sveitin spilað víða á árinu en er nú komin til Íslands á nýjan leik eftir að hafa verið í tónleikaferð með John Grant um Evrópu. „Við erum búnir að vera að spila mjög mikið erlendis og erum orðnir mun þéttari en við vorum fyrir ári.”

Í janúar spilaði Fufanu á Eurosonic áður en leið hennar lá aftur til Bretlands þar sem hún hitaði upp fyrir The Vaccines á tónleikaferðalagi þeirra í mars og apríl en uppselt var á alla tónleikana. „Það var rosa fínt að túra með The Vaccines. Það var smá áskorun fyrir okkur því við vorum að spila fyrir allt annan áhorfendahóp en við erum vanir. Við fundum mikið eftir túrana hvað við urðum miklu betri eftir að hafa spilað svona mikið,” bætir Gulli.
Á ferðalaginu hitaði Fufanu einnig upp fyrir Bo Ningen á tvennum tónleikum á Hoxton Bar & Grill og í júní hitaði Fufanu upp fyrir Blur á stærðarinnar tónleikum í Hyde Park.
Sveitin er nú þegar farin að huga að upptökum á nýjum lögum. Hvernig lítur næsta ár út hjá Fufanu? „Við ætlum að halda áfram að gera góða músík og spila á tónleikum og ætlum ekki að hætta. Það er alveg nóg að gera og við erum að verða komnir með lög í aðra plötu. Það ekkert túrplan komið eins og er. Við erum samt að fara til Bretlands í viku þar sem við verðum aðalhjómsveit kvöldsins eða „headline“,” segir Gulli.
Dæmi um gagnrýni
NME - 4/5
The Line Of Best Fit - 8,5/10
London Evening Standard - 3/5
Irish Times - 4/5
Uncut - 7,0/10
Mojo - 8,0/10