Viðskipti innlent

Sorpa braut samkeppnislög: 45 milljón króna sekt staðfest

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/valli
Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í dag 45 milljón króna sekt á Sorpu vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu.

Í desember 2012 sektaði Samkeppniseftirlitið Sorpu um 45 milljónir vegna brota á samkeppnislögum. Samkeppniseftirlitið komst að þeirri niðurstöðu að Sorpa bs, sem er byggðarsamlag sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, hafi brotið gegn samkeppnislögum með því að brjóta gegn markaðsráðandi stöðu sinni á markaði fyrir flokkun og meðhöndlun úrgangs. Það gerði Sorpa með því að veita eigendum sínum, sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu, hærri afslætti en öðrum viðskiptavinum svo sem sorphirðufyrirtækjum, jafnvel þótt fyrirtækin kæmu með meira magn af sorpi en sveitarféölgin í móttökustöð Sorpu í Gufunesi. Með heimild í samkeppnislögum beindi Samkeppniseftirlitið þeim fyrirmælum til Sorpu að byggðasamlagið endurskoðaði gjaldskrá fyrir þjónustu sína og viðskiptasamninga í samræmi við ákvæði samkeppnislaga.

Sorpa kærði ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og krafðist aðallega ógildingar ákvörðunarinnar en til vara að sekt vegna brotsins yrði felld niður eða lækkuð verulega. Byggði fyrirtækið m.a. á því að starfsemi opinberra fyrirtækja eins og Sorpu félli ekki undir samkeppnislög.

Í mars 2013 staðfesti áfrýjunarnefnd samkeppnismála ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Í úrskurðinum komst áfrýjunarnefndin meðal annars að þeirri niðurstöðu að enginn vafi leiki á því að Sorpa er félag í skilningi samkeppnislaga og að ákvæði sérlaga takmarki ekki heimildir samkeppnisyfirvalda til að beita bannákvæðum samkeppnislaga gagnvart Sorpu. Féllst nefndin ekki á kröfu Sorpu um lækkun sektar vegna brotsins.

Sorpa skaut úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála til dómstóla og í dag kvað Héraðsdómir Reykjavíkur upp dóm í málinu.

Brot Sorpu er sagt hafa raskað möguleikum annarra aðila til að keppa við hið opinbera fyrirtæki. Dómstóllinn féllst ekki á kröfu Sorpu um niðurfellingu eða lækkun sektar. Er í því sambandi meðal annars bent á að brot Sorpu hafi ekki verið smávægilegt og að fyrirtækið hafi ekki haft gildar ástæður til að telja sig undanþegið samkeppnislögum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×