Handbolti

Guðmundur fékk bara eina æfingu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Doha skrifar
Guðmundur á blaðamannafundi danska liðsins í gær.
Guðmundur á blaðamannafundi danska liðsins í gær. Vísir/Eva Björk
Guðmundur Guðmundsson varð að hætta við síðari æfingu danska landsliðsins hér í Doha í dag.

Opnunarhátíð keppninnar hefst innan stundar og var óskað eftir því við öll keppnislið að þau yrðu viðstödd hana.

„Svona er það bara og þýðir ekkert að fást meira um það,“ sagði Guðmundur á blaðamannafundi danska landsliðsins á hóteli þess í miðbæ Doha í gær

„Undirbúningurinn hefur verið góður og við erum tilbúnir í slaginn,“ sagði hann en Danmörk mætir Argentínu í fyrsta leik sínum í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport klukkan 18.00 í kvöld.

Ekki missa af neinu sem gerist á HM. Fylgdu Vísi á Twitter, Facebook og Snapchat (notendanafn: sport365).


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×