Lífið

„Kim Kardashian yrði betri forseti en Donald Trump“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Kim Kardashian er líklega ekki á leiðinni í framboð.
Kim Kardashian er líklega ekki á leiðinni í framboð. vísir/getty
Hip hop-mógúllinn Russell Simmons hefur gefið það opinberlega út að raunveruleikastjarnan Kim Kardashian yrði betri forseti Bandaríkjanna heldur en Donald Trump.

Fasteignamógúllinn og milljarðamæringurinn Donald Trump tilkynnti í vikunni um framboð sitt til forseta Bandaríkjanna.

Hann hélt fjölmennan fund í byggingu sinni, Trump-turninum, í New York og sagði að hann vildi gera Bandaríkin að stórkostlegu landi á ný.

Sjá einnig: Donald Trump vill verða forseti Bandaríkjanna

„Ég kann ekki að meta stjórnmálaskoðanir hans, ég held að hann myndi ekki reynast Bandaríkjamönnum vel, heldur þvert á móti,“ segir Simmons.

„Það yrðu skrifaðar margar fréttir um hann en hann hefur samt sem áður ekki nein áhrif. Kim Kardashian hefur mun meiri áhrif, hún yrði betri forseti, það er mín skoðun.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.