Lífið

Hættulegasta stellingin: Konan ofan á

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Passa sig.
Passa sig. Vísir/Getty
Mestar líkur eru á að getnaðarlimur karlmanna skaddist þegar konan er ofan á í rúminu. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar sem voru birtar í tímaritinu Advances in Urology journal. Í rannsókninni voru tilvik um óhöpp í svefnherberginu sem tilkynnt voru til þriggja spítala í Brasilíu, skoðuð.

Telegraph greinir frá.

Að sögn rannsakenda er talið að orsökin fyrir því að mestar líkur séu á því að getnaðarlimurinn „brotni“ í þessari stellingu sé sú að konan stýri hreyfingum mannsins og geti óvart látið allan þungan sinn á liminn.

Næst hættulegasta stellingin var hin svokallaða „doggystyle“ stelling, þar sem konan er á fjórum fótum. Hinn hefðbundni trúboði var öruggastur, að eins og kemur fram í niðurstöðum rannsakenda.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×