Lífið

Rússíbani í snjónum: „Útsýnið er frábææææært“

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hönnun rússíbanans er ansi frumleg.
Hönnun rússíbanans er ansi frumleg.
„Rasskinnarnar á mér sveiflast frá hægri til vinstri," segir blaðamaður miðilsins Theme Park Review í nýju myndbandi.

Farið er í heimsókn í Park City Mountain Resort í Utah-fylki í Bandaríkjunum og kíkt í ansi magnaðan rússíbana. „Þetta er eins og að vera á bobsleða," heyrist í blaðamanninum á meðan hann þeysist niður brekkuna.

Umhverfið skartar sínu fegursta í myndbandinu og gerir blaðamaðurinn heiðarlega tilraun til þess að fræða áhorfendur um það en þá kippist rússíbaninn niður: „Útsýnið er frábææææært," segir hann.

Hér að neðan má sjá myndbandið:






Fleiri fréttir

Sjá meira


×