Lífið

Stephen Fry genginn að eiga unnusta sinn

Bjarki Ármannsson skrifar
Hinn 57 ára Stephen Fry er genginn út.
Hinn 57 ára Stephen Fry er genginn út.
Breski leikarinn, grínistinn og rithöfundurinn Stephen Fry greindi frá því í dag að hann er genginn í hjónaband með unnusta sínum, Elliot Spencer. Þeir gengu að eiga hvorn annan á bæjarskrifstofunni í Dereham í Norfolk, á heimaslóðum Fry, og deildi hann mynd af viðburðinum með sínum átta milljónum fylgjenda á Twitter.

„Jahérna, við Elliot göngum inn í herbergi sem tvær manneskjur, skrifum í bók og förum út sem ein manneskja,“ skrifar Fry með myndinni. „Ótrúlegt.“

Fry, sem meðal annars er þekktur fyrir að stjórna spurningaþættinum QI á breska ríkissjónvarpinu og fyrir leik sinn í myndum á borð við Hobbitann og V for Vendetta, hefur oft talað opinskátt um geðræn vandamál sín og einmanaleika í kjölfar sambandsslita sinna við Steven Webb fyrir tveimur árum.

Hann greindi frá því fyrir tveimur vikum að þeir Spencer, sem er þrjátíu árum yngri en Fry, hyggðust gifta sig og hann væri „mjög, mjög hamingjusamur“ vegna þess. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×