Bíó og sjónvarp

Jennifer Lopez á brúninni sem barnaníðingur í væntanlegri kvikmynd

Margrét Gústavsdóttir skrifar
The Boy Next Door: Söng -og leikkonan Jennifer Lopez snýr aftur á hvíta tjaldið þann 23 janúar þegar sálfræðitryllirinn um strákinn í næsta húsi verður frumsýndur vestanhafs aðdáendum J-Lo til mikillar ánægju. 

Stikla úr myndinni var frumsýnd í gær en hér er sannarlega mikil spenna í vændum.

Hinn stórmyndarlegi Ryan Guzman leikur piltinn í næsta húsi en sagan segir af kennara sem fellur fyrir nemanda sínum og nágranna eina kvöldstund, með hrikalegum afleiðingum.

Í þessu samhengi er við hæfi að nefna að ófáar kennslukonur hafa verið ákærðar og dæmdar fyrir barnaníð í Bandaríkjunum. Meira um það má lesa hér.

Reikna má með að Guzman verði mjög áberandi í Hollywood á næstunni en hér er á ferðinni bæði hæfileikaríkur og myndarlegur ungur maður.

Það er Rob Cohen sem leikstýrir myndinni en þetta er í fyrsta sinn sem þau Jennifer Lopez starfa saman. Hér er myndin á IMDB.com






Fleiri fréttir

Sjá meira


×