Bíó og sjónvarp

Batman, Súperman og Wonder woman taka höndum saman

Samúel Karl Ólason skrifar
Superman, Wonder woman og Batman.
Superman, Wonder woman og Batman.
Warner Bros, framleiðendur kvikmyndarinnar Batman V Superman Dawn of Justice, hafa birt nýja stiklu fyrir myndina. Stiklan var fyrst sýnd í þætti Jimmy Kimmel í gærkvöldi. Stiklan sýnir nokkuð mikið frá söguþræði myndarinnar og í fyrsta sinn má sjá að Batman og Superman taka höndum saman.

Þeim til liðs er Wonder woman, sem leikin er af Gal Gadot. Aqua man mun einnig birtast í myndinni, en hann er leikinn af Jason Momoa, sem einhverjir þekkja ef til vill betur sem Khal Drogo.

Myndin verðu frumsýnd þann 25. mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.