Lífið

Þingkonur á hundasleða

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Vísir/GVA
Þingkonurnar Unnur Brá Konráðsdóttir, Vigdís Hauksdóttir og Oddný Guðbjörg Harðardóttir eru ásamt öðrum meðlimum Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins staddar í Aasiaat á Grænlandi vegna árlegrar þemaráðstefnu ráðsins.

Oddný deildi mynd á Facebook-síðu sinni af þingkonunum á hundasleða og skrifaði undir myndina að þingmenn frá Íslandi, Grænlandi og Færeyjum hefðu skellt sér á hundasleða áður en ráðstefna um samstarf landanna þriggja hófst.

Einnig tók hún fram að allir væru vel klæddir í kuldanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×