Óskarsverðlaunahafi gerir Benjamín dúfu Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar 6. maí 2015 10:00 Úr myndinni Benjamín dúfa, eftir sögu Friðriks Erlingssonar. „
Ég er alveg rosalega spenntur fyrir þessu og það er mjög þýðingarmikið fyrir myndina að fá framleiðanda Boyhood með okkur í lið,“ segir Erlingur Jack Guðmundsson, einn framleiðenda bandarískrar endurgerðar á myndinni Benjamín dúfa. „Hún las handritið að myndinni og heillaðist gjörsamlega af sögunni, fannst hún raunveruleg og einstaklega hjartnæm.“ Með honum vinna einnig framleiðendurnir Cathleen Sutherland Óskarsverðlaunahafi og Susan Kirr, sem framleiddi kvikmyndina The Tree of Life. „Ég er búinn að vinna þetta með Kirr og leikstjóranum og handritshöfundinum Brandon Dickerson. Þeim fannst vanta einn framleiðanda í viðbót og þannig kom Sutherland inn í þetta verkefni,“ segir Erlingur.Erlingur Jack Guðmundsson, einn framleiðendanna, segir mikinn feng að fá framleiðanda Boyhood.vísir/ernirÞað eru komin þrjú ár síðan hann bar það undir höfund bókarinnar, Friðrik Erlingsson, að gera bandaríska útgáfu af myndinni. „Í gegnum sambönd sem ég hef þá kynntist ég Kirr, og plataði hana til þess að lesa bókina. Hún gerði það og fannst hún auðvitað svo frábær að hún gat ekki með nokkru móti lagt hana frá sér.“ Til stendur að hefja tökur á myndinni í ágúst, en prufur fyrir helstu hlutverkin eru á lokastigi. Hann segir mjög líklegt að einhver þekkt nöfn verði í aukahlutverkum í myndinni, en getur ekki gefið það upp að svo stöddu. „Sá sem er að aðstoða okkur við að finna stráka í aðalhlutverkin var „casting director“ í myndinni No Country for Old Men. Eins og er þá erum við að skoða um fimmtán stráka sem koma til greina í aðalhlutverkin,“ segir hann. Myndin verður tekin upp í Texas, og mun henni svipa mjög til íslensku útgáfunnar, sem fagnar tuttugu ára afmæli sínu í ár.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Færeyjaferð endaði á Hotel Cabin: „Búnar að hlæja viðstöðulaust síðan við fórum upp á völl“ Lífið Bannað að ræða fótbolta og heimilisfjármálin á stefnumótum Makamál Smakkaði skötu í beinni: „Sjitturinn, kött!“ Matur Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið Íslendingar tilnefndir til Emmy-verðlauna Bíó og sjónvarp „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lífið Fleiri fréttir Íslendingar tilnefndir til Emmy-verðlauna Tobey Maguire er á landinu Fyrsta stiklan úr Gladiator II Jon Landau er látinn Brad Pitt í mynd um Formúlu 1 í framleiðslu Hamilton Donald Sutherland er látinn Heimaleikurinn vann til verðlauna í Ástralíu „Gaman hvað verið er að tala fallega um samstarfsfólkið mitt“ Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Gerard Butler á klakanum í enn eitt skiptið Íslenskur hryllingstryllir á Vestfjörðum vekur athygli í Tribeca Eltihrellirinn höfðar mál gegn Netflix Þýskur risi í samstarf við ACT4 um gerð Stóra Bróður Sjá meira