Beavis og Butthead að þjálfa Keflavíkurliðið í vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. október 2015 18:31 Beavis og Butthead. Vísir/Getty
Þjálfarar Keflavíkur í Domino´s deild karla fengu skilboð í auglýsingu fyrir heimaleiki liðsins í vikunni en þessi auglýsing birtist í Víkurfréttum. Karfan.is segir frá þessu á síðunni sinni og birtir mynd af auglýsingunni í fréttinni sem hefur fyrirsögnina: „Vissara að mæta í myndatökuna!" Keflavík er að kynna leikmenn og þjálfara meistaraflokks karla í viðkomandi auglýsingu og þar er mynd af öllum leikmönnum í hópnum. Það eru hinsvegar ekki myndir af þjálfurunum Sigurði Ingimundarsyni og Einari Einarssyni sem eru tveir af þekktustu og farsælustu þjálfurum Keflavíkur í gegnum tíðina. Það lítur út fyrir að þeir Sigurður og Einar hafi ekki mætt í viðkomandi myndatöku og að refsingin hafi verið afar sérstakt myndaval. Í stað þeirra eru nefnilega myndir af teiknimyndapersónunum Beavis og Butthead sem vöktu mikla athygli þegar þeir voru á MTV sjónvarpsstöðinni á tíunda áratug síðustu aldar. Nú er bara spurning hvernig þjálfararnir taka í þetta grín en þeir eru nú þekktir fyrir að láta leikmenn sína komast ekki upp með neitt múður. Það er hægt að sjá alla auglýsinguna með því að smella hér en hún er á síðu 23.
Dominos-deild karla Mest lesið Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti ÍBV og Grótta með sigra Handbolti Andri Lucas lagði upp í óvæntu tapi Fótbolti Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Handbolti Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Amanda lagði upp á leið sinni í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Töpuðu með ellefu í Tékklandi Handbolti Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira